TENGSTU Á SNJALLAN HÁTT

Með FordPass appinu

FORDPASS TENGINGAR

Tengdur heimur með FordPass

 Tengdir bílar. Paraðu saman FordPass og FordPass Connect til að leysa úr læðingi fjöldan allan af snjöllum eiginleikum. Þegar þú hefur tengst mun bíllinn þinn eiga í samskiptum við heiminn í kringum þig, auk þess að veita þér upplýsingar um bílinn, svo þú getir verið á ferðinni á snjallan hátt.

FJARLÆSING

"Læsti ég bílnum?" Með FordPass er auðvelt að komast að því. Þú getur læst eða aflæst bílnum (völdum gerðum) hvar sem þú ert og haldið áfram eins og ekkert hafi í skorist.

FJARRÆSING

Hljómar það ekki vel að koma út í heitan bíl á morgnana þegar það er kalt úti? Þinn Ford verður hlýr og klár í slaginn.

STAÐSETNING BÍLSINS

Týndirðu bílnum á stóru bílastæði eða lánaðir einhverjum hann? Með FordPass geturðu auðveldlega séð staðsetningu bílsins þíns á korti.

FORDPASS FYRIR TENGILTVINN- OG RAFBÍLA

STAÐSETNING HLEÐSLUSTÖÐVA

Í FordPass appinu geturðu séð á korti hvar þú getur hlaðið bílinn þinn. Það er mjög heppilegt þegar þú ert á ferðalagi.

ATHUGAÐU DRÆGNINA

Bíllinn metur drægnina út frá ýmsum þáttum eins og veðri og aksturslagi þínu. Hann áætlar svo hversu langt hann dregur, sem auðveldar þér að skipuleggja ferðir dagsins.